Sælir!
03.07.2007 01:56:43 / addipaddi

daddara

TIL HAMINGJU MEÐ AFMÆLIÐ HILDUR;***
 
 

» 1 hafa sagt sína skoðun

29.05.2007 13:19:48 / addipaddi

Ferðabloggið sem ég lofaði:D


LOKSINS;D

Jæja... Ég er ekki alveg búinn að standa við það að blogga reglulega og setja inn myndir..:$ eeen.. þar sem klukkan er rétt að verða 9 hérna núna og Eyþór ennþá sofandi þá skelli ég smá ferðasögu hingað inn

 

Gerðist fullt sniðugt á Leifsstöð.. þegar við vorum að labba að hliðinu okkar þá sá ég múslima þarna og ég sagði við Eyþór: “ hey... hriðjuverkamaður:O” og um leið og ég sagði þetta fór allt rafmagnið af öllum flugvellinum! Þegar það kom aftur á eftir korter fór brunakerfið í gang og læti og allir kanarnir á staðnum voru skítrhæddir og hlupu út á meðan við íslendingarnir héldum áfram að versla og þannig. Svo tók við 5 tíma flug..

DSCF2818.jpg

Við lentum í smá veseni í tollinum úti því við vorum með áfengi á okkur en auðvitað var hægt að ljúga sig út úr því og redda málinum (H)

 

 

Mamma tók svo á móti okkur og við keyrðum niðri Boston og fengum okkur stærstu pizzu sem ég hef séð haha:D

DSCF2842.jpg

 

Seinni daginn skutluðum við mömmu í skólann svo við gætum verið á bílnum hennar... um 9 þá leiddist okkur þannig við skelltum okkur út á götur Boston og fundum mall og verslunargötu og þannig;) duglegir ha? Um kvöldið kom svo pabbi krúsandi af flugvellinum á gulum mustang blæjubíl;) very niiice..

DSCF2884.jpg

 

Þriðji dagurinn var góður;) pabbi skutlaði okkur á Newbury street sem er verslunargata í Boston og þar röltuðum við allan daginn og Eyþór fékk að sjá Boston Legal húsið ;D merkur dagur í lífi hans ahhaha:P

P5170014.jpg

 

18. maí skelltum við okkur í Six flags í Springfield;) osom stuð þar:D

P5180036.jpg

 

Næsta dag kíktum við á eitthverja verslunargötu aðeins fyrir utan Boston og vá.. það var eins og hún væri hönnuð fyrir gamalt fólk!.. ekkert flott þar! En eftir það skruppum við til Önnu frænku hérna og vorum þar í smá stund.. hitta stelpurnar og þannig;)

P5190018.jpg

 

Daginn eftir keyrðum ég og Eyþór aftur til Önnu til þess að þrífa sundlaugina... en auðvitað þegar við vorum að því fór að rigna þvílíkt en við létum það ekkert stoppa okkur;D... en á endanum gáfumst við upp og fengum okkur pizzu:P... Samt áður en við fórum heim og þegar sólin kom aftur stungum við okkur aðeins út í skítuga sundlaugina og svo fórum við í sólbað:P yndislegt!

P5200043.jpg

 

21. Maí vöknuðum við snemma því ég, Eyþór og pabbi vorum að fara að skreppa í dagsferð til New York City. Það tók 6 tíma að keyra til New York og 1 og hálfan klukkutíma í viðbót fyrir pabba til að finna hótelið okkar.. sem hann fann ekki! Þannig við lögðum bara og tókum rútu niðrí bæ. Ég og Eyþór röltum um Soho og Noho og fundum eina búð sem heitir Lounge og keyptum slatta þar;)... svo fundum við markað í China Town og Eyþór keypti sér úr á 12 dollara :P prúttari..

P5210156.jpg

 

Eftir daginn tókum við rútuna aftur heim og fórum að finna hótelið sem var í New Jersey. Á leiðinni lendum við á ljósum og það eru nokkrir svartir gaurar í bíl við hliðina á okkur.. og einn garuinn byrjar að kalla á okkur og spurja hvernig mustanginn væri á litin... Eyþór svaraði að hann væri gulur og þá fóru þeir að hlægja og eikkað og einn gaur inní bílnum bara.. Nooo it’s orange maan... og svo kom grænt og við keyrðum áfram(pabbi tók ekkert eftir þessu því hann var upptekinn að lesa á götukortin til að finna hótelið). Svo keyra þessir gaurar aftur framhjá og kallar einn It’s orange maaan! Og við vorum komnir soldið fyrir framan þá þannig Eyþór öskrar “YELLOW” til baka og pabbi hrekkur upp og snappar á Eyþór : “ Eyþór hvað í fjaaaaaaandanum ertu að hugsa??? Þú öskrar ekkert bara Yellow á svertingjana hérna!!!!! Þetta gæti verið eitthvað code hérna..! díísus.. núna verðum við skornir í búta strákar!!!!” hahahaha þetta er örugglega samt svona had to be there móment..:P eeen ég vildi deila því hérna...

P5210165.jpg

Við fundum loksins hótelið, fórum inn, skiptum um föt og tókum lestina aftur til Manhattan. Við röltuðum um bæinn og enduðum inní Empire state building;) skelltum okkur þar upp og kynntumst frönskum krökkum þar haha:P Svo enduðum við kvöldið með því að fara á Time Square að skoða allt þar og keyptum okkur geisladiska í Virgin records þar;)

DSCF3008.jpg

 

Við þurftum að vakna snemma til þess að keyra heim því við vorum að fara í flug til Atlanta sama dag. Á leiðinni til baka tók pabbi sér smá kvíld frá akstrinum og ég og Eyþór tókum við;D ... ekki slæmt að keyra mustang blæjubíl á 130 km hraða löglega:D

P5220254.jpg

 

Restin af deginum fór svo bara í að ferðast...

 

Í Atlanta gerðum við fullt... við fórum að veiða með Hemma, skelltum okkur á sjóskíði sem var svo gaman!, fórum í six flags, fórum í sund, skelltum okkur á Hooters og spiluðum tennis við pabba og Hemma á hverju kvöldi held ég:P ... Seinasti dagurinn var verstur.. Við fórum kl. 11 í Six flags White water sem er vatnsrennibrautagarður og ætluðum að vera þar til 3 og þá myndum við fara beint niðrá flugvöll og heim... Pabbi og hemmi skutla okkur og keyra svo burt... Svo komumst við að því að passinn sem við vorum með inn í garðinn gildir bara fyrir rússíbanagarðana og ekki vatnagarðana! Þannig við vorum fastir þarna.. með 27 dollara og enga síma eða símanúmer... þurftum að bíða til 3 hahaha:P fengum samt fullt af fríum spilapeningum til að leika okkur frá fólkinu þarna sem vorkenndi okkur og security gaurarnir sögðu okkur bara að fara í Minigolf frítt og þannig;)

P5220006.jpg

 

Eftir að við lentum í Boston þá fórum við beint á Pirates of the Carribean 3 :P ágætis mynd.. soldið rugl samt.. en við erum líka búnir að sjá Shrek 3 hérna sem var snilld:D Eftir að við komum heim erum við bara búnir að taka því rólega, fórum inn í Boston um dagin.. og á ströndina hérna í gær og þannig... pabbi er farinn aftur heim og það eru 8 dagar í okkur:P styttist í þetta;) jááá.. ég ætla að segja þetta gott í bili og fara að vekja hann Eyþór kallinn;) vona að einhver hafi nennt að lesa þetta og endilega COMMENT;D

 

DSCF0028.jpg 

Kveðja frá USA förunum;D  

 


» 15 hafa sagt sína skoðun

14.05.2007 15:40:55 / addipaddi

blgg 2?

Jæja.. ég og Breezer sitjum hérna á Leifsstöð.. bíðandi eftir að klukkan slái 5.  ohh.. þetta verður of góð ferð:D mæli með að þið fylgist með hérna.... endum þetta stutta blogg á einni mynd sem ég var að taka:D

 

 

 


» 5 hafa sagt sína skoðun

09.05.2007 18:15:37 / addipaddi

5 dagar

jæja.. 5 dagar í USA;D fkn ooosom... en já..beint eftir þýskuprófið í dag skellti ég mér með Eyþóri niður í Borgartún að fá okkur alþjóðlegt ökuskírteini svo við getum keyrt þarna úti!  En já.. við mætum og þá veit engin þarna neitt hvort við megum eða megum ekki keyra.. ein segir að við megum það ekki á 2 ára skírteini, önnur segir að við megum það ekki vegna trygginganna og að við þyrftum fydrst að tala við Ameríska sendiráðið áður en við myndum fá skírteinið.  Þannig.. næsta stop... Ameríska sendiráðið.  Við keyrðum niðrí bæ og fundum þennan stað.  Stóðu 2 lögreglumenn klæddir í amerískan lögreglubúning og voru að vernda húsið hehe.. þeir sögðu okkur að við ættum bara að hringja og ýta nokkrum sinnum á 0 þá myndi einhver svara.  Það virkaði.  Jæja.. við keyrum aftur niðrí Borgatún og þá segir gjaldkerinn " Æj heyrðu, ég gleymdi að segja ykkur það áðan, þið þurfið að vera með passamynd fyrir þetta.  Sorry".  Næsta stop, Kringlan.  Við keyrðum niðrí Kringlu og fengum okkur að borða og svo fórum við í passamyndatöku og beint niðrí Borgatún aftur.  loooksins komnir með skírteinið.  :D

 

 En ég ætla að vera að blogga hérna af og til og setja inn myndir og þannig;) stay tuned


» 6 hafa sagt sína skoðun

25.04.2007 23:55:16 / addipaddi

....

Okeeei.. hvernig sem þú fannst þessa síðu.. þá er alla vegana ekkert skemmtilegt hérna lengur;)

» 2 hafa sagt sína skoðun